Komin með nýja síðu!!!!
Adressan er....
annaroz.bloggar.is
Stemmning..
Einar bróðir kom í heimsókn í gær. Mikil stemmning. Kemur aftur eftir tvær vikur. Þá með fjölskylduna. Planað að fara í laufabrauð.
Jæja margt að segja en enginn tími til þess.
sjáumst
Ískalda Akureyri
Í dag var ÓGEÐSLEGA KALT !!
Var farin búðarferð og daman litla dressuð upp í nýtt snjódress og massíva húfu. Ótrúlega ánægð með dressið Very PINK hehehehe
Orðin svo strressuð á þessum skóla að mig langar mest til að fara undir sængina aftur á morgnanna þegar ég vakna. Spurning um að hella sér ekki út í fullt nám með öllu öðru. Er ekki með þannig límheila að ég höndli svona margt í einu. Annars er þetta nú að hafast vonandi. Hlakka alveg ógeðslega til þegar þetta er búið.
En að ínu glæsta skemmtanalífi. Mín fór galvösk á árshátíð í Hlíoðarbæ um helgina. Svakalegar sviptingar hehe Rosa flottur matur og ekki af verri endanum skemmtiatriðin. Arnar toppaði þau svakalega. Var kallinn í skemmtinefn og af þeim sökum máttum við þrífa eftir á. Var orðin ansi lúin um fimm. Enda ekkert þol á .essum vettvangi lengur.
Er búin að vera laga til í kvöld. Þvílíkt sem maður þarf að þrífa núna Jæks.. Reyndar dálítið fyndið. Var að þrífa um daginn og fann gömul bréf frá Rósu þegar hún bjó fyrir sunnan. Ekkert smá fyndið að lesa þetta núna. Við erum að tala um síðan við vorum sautján hehehe Örlar á dálítilli gelgju ásamt grín fan jóki með spice girls hehe
Er annars bara að bíða eftir að kallinn komi heim í smá skylduknús. Hann er að járna út í Skriðu dugnaðarforkurinn sá;)
until next..
Fréttir rásar Önnu
Að nýr fjölskyldumeðlimur hefur litið dagsins ljós. Hún heitir Doppa og er 6 vkina læða (Bjó í skúffu í Skriðufjósinu þannig að ég held mig við dagsins ljós) ;)
Hún er óskup lík okkur hinum í fjölskyldunni, stríðin, ljúf og afskaplega krúttleg hehehe
Við erum formlega búin að koma okkur fyrir og aldrei hefur okkur liðið jafnvel um ævina eins og hér í Grundinni. Alveg hreint dásamlegt.
Ég keypti mér geggjaðan síma í dag (áhrifa Ingu Sóleyjar "eyðsluklóar" gætti þar) Allavega var það altalað SKO að ég versla meira þegar ég er með henni hAHAHAHAHAHA Ótrúlega sæl með hann
Inga Sóley brá sér af Hólum í Hjaltadal og var komin í kaffi og með því átta í morgun. Enginn var Ólinn með en bættist nú úr því þar sem 'Oli Hermanns boðaði sog einnig í morgunkaffi. Yndislega Sunna Margrét með sínar snúllu dúllu kinnar sem manni langar að knúsa svo mikið kom náttla til frænku;) og léku örverpin sér saman meðan Gunnan lék sér á Krógabóli.
Ég, Inga Sóley, Guðrún Petra og Eva Morales skelltum okkur á Plaza í hádeginu og skemmtum okkur gríðarvel. Þar var borðað á sig gat;)
Fór í sjónmælingu í dag og er víst orðin nærsýn og skekkt eitthvað. Spurning um að fá sér spangir til að toppa þetta;) Er nú reyndar enn með höfrunginn minn á tönninni þannig að það dugar kannski. Í BILI
GÓÐUR DAGUR Í GÓÐRA VINA HÓPI GETUR EKKI KLIKKAÐ
EINS OG DÓTTIR MÍN SEGIR Æ LOL JÚ
bACK TOOOO JÚ ALL MY DEAR VONNS
Kennaraneminn bloggar
Ég er komin úr borg óttans og fyrir nokkrum dögum síðan. Meira að segja búin að eiga afmæli í millitíðinni. Hmmm er að bíða eftir að Inga Sóley aðaltútta muni eftir mér. Við erum alveg með einkahúmor hvað varðar gleymda afmælisdaga og nú liggur kella alveg gjörsamlega í því heheheeh..
Í borginni hitti ég mína dásamlegu fjölskyldu og yndislegu vini. (agalega lítið) Einn kennari sem kennir okkur er búin að setja á blað hvernig við eigum að afsaka okkur útaf náminu þegar vinir og ættingjar eru sárir vegna tímaleysis okkar. Verð að fara lesa þetta hefti;)
Í´skólanum gengur vel og ótrúlega skemmtilegur hópur búinn að hristast saman.
Ótrúlega spennandi nám og skemmtilegt í alla staði.
Er að leggja lokahönd á rannsóknarritgerð með henni Gyðu minni og gengur vonum framar. Búin að láta lesa þetta yfir og allir almennt hrifnir. Fjallar um ævintýri í kennslu.
Litla skinnið mitt fékk magaveiki meðanég var í burtu og stússuðu því þau feðgin í því greyin. Arnar orðin ótrúlega fær og þvottavélina.
Daman var nú kannski búin að fá nóg engu að síður. Nýbúin í aðgerðinni og fékk streptococca ofan í það. Síðan bættist gubb og móðurleysi. HENNI FINNST REYKJAVIK EKKI SKEMMTILEG Núna spyr hún mig ef ég ætla aðeins að bregða mér frá hvort ég sé nokkuð að fara til Reykjavíkur.
Hið daglega líf er nú samt allt að koma og húsið okkar alveg að verða klárt.
Munið svo elskurnar mínar að fara commenta.
Kennóskvís líka. Ekkert gaman að vera bara á Webct
Aðeins of mikið af því góða...
Erum komin með lyklana af nýja húsinu og erum á fullu að gera klárt. Vorum búin að fara með alla kassa og öll húsgögn þangað.
Þvílíkur draumur að þetta sé loksins að gerast.
Litla skinnið mitt fór í aðgerð í gær og stóð hún sig eins og hetja. Eins og venjulega;)
Vorum upp á sjúkrahúsi í allan gær og horfðum við mamma á skýjahöllina meðan litla svaf úr sér.
Skólinn er byrjaður á fullu og hefur fengið að mæta heldur miklum afgangi því miður. En nú verður tekið all svakalega á því.
Búin að senda inn drög af rannsóknarritgerð og bíð með hnút í maganum eftir að kennarinn fari að gagnrýna þetta:(
Arnar á fullu í göngum og svaka stuð. Mín missir af öllu stuðinu:( Ætla SKO að fara næst(sagði þetta reyndar síðast líka) en svona er þetta nú. Allt skal alltaf vera á sama tíma.
Erum búsett núna hjá mömmu og pabba meðan við málum og parketleggjum allt. Þannig að það er bara pottur og bjór á kvöldin. Voðalega nais;)
En hvernig er það eru allir hér hættir að blogga???
En þetta var svona tilkynningarskyldan í dag.
Until next Anna
Ber
Komin með yfir 5 kíló og svo er bara rigning damn...
En nú bíð ég bara eftir góðu veðri og þá ætla ég að tína hrútaber og gera vín AHA
Annars er að fara setja í gírinna og byrja að gera beinagrind af rannsóknarritgerð.
En elsku vinkonur takk innilega fyrir allt meðan ég var fyrir sunnan. Þið eruð bestar;)
REYKJAVIK CITY
Persónulegt met frá fjölskyldunni ...
Flaug suður með hnút í maganum af spenning, gleði, söknuði og öllum hinum geðsveiflunum.
Einar náði í mig og var náttla svo flottur á því að lána mér bílinn sinn á meðan ég var sunnan heiða. Fór til Jóhönnu og Guðna um kvöldið og dreyptum við á rauðvíni og spjölluðum.
Dagur 1 gekk bara stórvel. Hópefli, kynning, Ratleikur og stemmning.Fór til Rósu og hún bauð mér í mat og snúlluðum við okkur bara. Tókum einn skreppitúr til að ath með kanínur handa Söru.
Dagur 2 Skóli, horft á eftir peningi í bækur og verslunarmiðstöðvar hehe hitti Ingu Sóley og kíkktum við í ófáar búðirnar ásamt því að fá okkur djúsi mat;) Fór til Jóhönnu og höfðum við videokvöld. Tókum mynd með scharlett Johannson Góð en hæg. Á erfitt með að horfa á myndir þar sem woody Allan kemur eitthvað við sögu. Krípí kall
Dagur 3 Skólast, verslað og farið í Hveró. Hitti snúllu dúllurnar þau Björgvin Viðar og Elísu Björk. Björgvin skellti sér með vinum sínum e-h og við Einsi og Elísa spjölluðum og smá rautt;)
Dagur 4 skóli Hitti Ingu Sóley verslað hitti Bjartey verslað meira. Hún er með meirapróf í Ikea má segja og lét ég hana valsa með mig gegnum stígin þar og var ég búin að endurhanna nýja húsið á skotbragði. Fórum síðan á Álftanesið og tókum með okkur taka away frá krua tay eða e-h svaka gott
Hún og Tumi nýgift og stemmning. Hann er framhaldskólakennari og var gaman að tala um skólan við hann. Annars slúðruðum við bara og fengum okkur rautt;)
Dagur 5 skólast blessast og drifið sig í Bjarnó. Var allt í einu búin að fá nóg af borginni. Ath með flug allt fullt. 'Akvað nú samt að doka eftir einu flugi áður en ég tæki bíl norður. Komst að í fluginu og var komin í fangið á fjölskyldunni eftir 45 mín
Æðilslega gaman. Arnar hélt að ef ég færi ein þá væri það ódýrara. HAHAHAHA...
Flateyjardalsferð lokið
Fyrir rúmri viku héldum við af stað í hestaferð út í Flateyjardal. Fórum á hestum frá Skriðu í Hörgárdal og fórum við í nokkrum skrefum alla leið í Flateyjardal. Það var stór hópur af fólki og enn fleiri hross. Gistum tvær nætur í Heiðarhúsum þar sem langamma mín á víst að hafa fæðst og alist upp til 16 ára. Fengum svakalega gott veður og höfðum við ánna út af fyrir okkur. Reyndi ekkert svakalega mikið á veiðimennskuna hjá okkur hjúunum þar sem við vorum með hálfónýta stöng og þótti okkur bara betra að fá okkur göngu með öl. Löbbuðum upp á eina hæðina og fórum í smá sólbað. Æðislegt útsýni þarna. Prufaði ný hross og var það alveg æðislegt. Nú verður maður bara að halda sér við. Tók þessi ferð enda síðasta fösudag með pizzuveislu í Skriðu. Tók Elísu með mér og léku þær sér saman. Fullt af kettlingum og fleiru.
Vorum síðan í grilli í gær í skugganum. Yfir tuttugu manns eða svona það nánasta. Geggjað gott. Verið að grilla veiðina hans Einsa. náði loksins mynd af öllum barnabörnunum þeirra mömmu og pabba saman á eina mynd.
Set hana inn.
Smá updait hehe
Eftir að hafa innbyrgt mikið magn af veitingum og mín "súpt í sig" rauðvín þá héldum við heim á leið.
Þriðjudaginn 100707 átti mín stórkostlega og óborganlega dóttir afmæli. Héldum við svaka fínt pulsupartý upp í Efri Vindheimum. Fullt af fólki kom og má þar nefna Gullu frænk, Ester og Guðrúnu Rut sem kom þó svo hún átti að eiga þann sama dag. 'Atti bara strák daginn eftir þessi elska. Til hammó með það elskan mín;)
Já ömmur afar frænkur og frændur og svoo var heiðursgestur en það var Kálfurinn hennar ömmu sem við buttum við staur og skemmti hann ungum sem öldnum;) Það merka gerðist að Týra labbaði uppeftir. En þeir sem þekkja til hennar vita að það er afrek hehhehehehehehe
já skvísan varð tveggja, amman og afinn áttu afmæli. Vinkona gifti sig og önnur átti barn. Já nei það er sko ekki allt búið..
Ættarmót var núna um helgina og var það Myrkárættin.
Mjög gaman og fullt af fólki. Flestir komu og vorum við í dag á Myrká að njóta veðurblíðunnar. Fórum í kirkjugaðinn og settum blóm. Hitti ekki djáknann þó svo það hefði orðið minnisstætt.
Núna var síðan hún Bjartey vinkona að hringja og ákvað hún í gær að gifta sig og verður brúðkaupið næstu helgi. Þannig að núna er bara hux hux eins og hjá honum Bangsímon vini mínum.
Verðum að reyna að mæta og Fanney mín ef þú lest þetta þá lét ég hana vita að þú værir væntanleg og þú ert náttlega boðin. Vonandi ekki búin að gera plön;) Kemur og syngur sæta;)
Annað markvert sem var að gerast hjá mér. Þar að segja persónulegur sigur. Var að hjálpa Arnari að járni. Hélt fæti meðan hann var að negla. Fannst ég algjör hetja. Þar sem ég er nú venjulega gungus hehe
Jææja meltið og leggjist til hvílu kæru vinir. Fara svo að kommmma hér. Þýðir ekkert að segjast skoða þetta þegar maður hittir ykkur út i búð gott damn